Endurminningar 2007

Í Fríðu-fréttum var þetta helst:

Framkvæmdir á Sólvallagötunni

 

 

 

 

 

 

 

 

Miklar framkvæmdir

 

 

New York

 

 

 

 

 

 

 

 

Skemmtiferðir

 

 

skuggabrúðu sýning í Xi'an

 

 

 

 

 

 

 

Listir og  handverk

 

 

Rapture

 

 

 

 

 

 

 

 

Tónleikar

 

 

Matthew, daginn sem hann lést

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Djúpar sorgir

 

 

Komin á tindinn!

 

 

 

 

 

 

 

 

Litlir sigrar

 

 

Götuskemmtun í Hangzhou

 

 

 

 

 

 

 

Þónokkur gleði

 

 

fræðsla í Jumeirah Mosque

 

 

 

 

 

 

 

Aukinn skilningur 

 

 

ég klædd í Burqa

 

 

 

 

 

 

 

Nýjar upplifanir 

 

 

ég, Siggi og Sara

 

 

 

 

 

 

 

Samglaðst með ástvinum

 

 

Já, það var ýmislegt sem gerðist á þessu frábæra ári, þó svo ég stikli nú bara á stóru hér. Það er eiginlega smá pressa á 2008 núna þegar ég hef rifjað upp hvernig 2007 var. 


Jæja, það eru þá smá vitsmunir eftir

í kollunum á þeim. Og þó. Þetta var svo óendanlega heimskuleg yfirlýsing til að byrja með að það er nánast, ef ekki alveg, vonlaust að bæta fyrir hana. Rak höfuðið í! Ég get ekki hætt að hneykslast á þessu. Og nú er verið að kenna læknunum um þessa yfirlýsingu. Eins og þeir sjái ekki muninn á því hvort manneskja hafi verið skotin eða rekið sig í. Ekki mundi ég vilja fara til læknis í Pakistan miðað við þessa álíka fáránlegu yfirlýsingu.
mbl.is Útskýringar á dauða Bhutto dregnar til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er besta vinkona mín

orðin frú. Frú Sara.

 

Fallegt brúðkaup í alla staði 

 knús

 

 

 

 

 

 

 

Svo ekki sé nú minnst á hvað það var gaman! 

ég, Kristín og Jónína

 

 

 

 

 

 

Skál fyrir Söru og Sigga og æðislegum degi. Takk fyrir að fá að taka þátt!

Skál fyrir brúðhjónunum!

 

 

 

 

 

 

 

 


meter er ekki íslenska

Meter er útlenska. Metri er íslenska.

Hér er metri
um metra
frá metra
til metra

Því má til gamans geta að lítri er á sama hátt misnotaður í íslensku tali, fólk segir í sífellt meira mæli líter. Sem og kalkúni sem fólk vill endilega kalla kalkún - eins og í kalkúnn með tveimur n-um og engu i-i. Ég hef alveg mínar málfarsvillur, en það eru ákveðnar staðlaðar villur sem fara óskaplega í taugarnar á mér og þessar eru meðal þeirra.


mbl.is Kópavogslækur flæðir yfir bakka sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir veru mína í Kína

er ég ekki hissa á þessu. Þetta er bara enn ein ástæðan fyrir því af hverju ættleiðingarferlið hreinlega verður að taka styttri tíma en raun ber vitni. Ég veit ekki um eitt barn þar í landi sem hefur fengið ættleiðingu fyrir eins árs afmælið sitt.
mbl.is Umönnun fyrstu tvö árin hefur bein áhrif á vitsmunaþroska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkur missir

fyrir Pakistönsku þjóðina.
mbl.is Bhutto lögð til hinstu hvílu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupi þetta ekki

Ég er nýflutt í íbúð sem er öll undir súð og í fyrstu var ég alltaf að reka mig í og oft mjög fast. Eitt skiptið var höggið svo mikið að ég stífnaði öll upp og missti heyrn í nokkrar mínútur. Það þarf ekki að fjölyrða um höfuðverkinn og kúluna sem fylgdu í kjölfarið og endust mér í nokkra daga. Ég er hins vegar á lífi og höfuðkúpan í heilu lagi.
Þessi stórkostlega kona var myrt fyrir að berjast fyrir réttlætinu og það þýðir ekkert að vera með svona kjaftæði. Bíð bara eftir því að þeir úrskurði að þetta hafi verið sjálfsmorð. Ætli það þurfi nú nokkuð að leita til Al Qaeda til að finna sökudólginn, hugsa að einhver töluvert nær hafi staðið fyrir þessu. Kannski sá hinn sami og heldur því fram að hún hafi rekið sig í. Pft.
mbl.is Lést af völdum höfuðhöggs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innsláttarvillur og mbl saman í sæng.

"Enn er óvitað hve margir létust alls og særðust og er talið að dolk sé enn innlyksa í byggingunni, sem er fjögurra hæða á, og er illa farin."

Ég vona að dolkið sé nú heilt á húfi og það grynnki fljólega í þessari fjögurra hæða á.


mbl.is Sautján látnir í sprengingum í Sierra Leone
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hlakka

nú svolítið til að sjá hvort spáin rætist - hvort það verður jólasnjór í ár. Æ, þið vitið örugglega hvað ég er að tala um, þetta hvíta kalda og mjúka sem þakkti jörðina svo oft hérna í gamla daga.

Jæja, hér er smá upprifjun

 


Ég er

svo löngu komin fram yfir þægindamörkin og mín bíður annar erfiður vinnudagur á morgun.....

Paprika sofandi

 

 

 

 

 

 

...ætti auðvitað að fara í háttinn eins og Paprika.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband