Færsluflokkur: Matur og drykkur
7.12.2007 | 12:55
ég get nú ekki
sagt að grænt te sem selt er hér heima sé að nokkru leiti skilt því tei sem ég kynntist í Kína. Teið hérna er viðbjóður sem ég hef oft pínt ofan í mig vegna þess hve hollt það á að heita svo þegar ég asnaðist á hefðbundið tehús fyrstu vikuna mína í Kína brá mér heldur í brún að smakka alvöru grænt te - algjört lostæti.
Svo á maður ekki bara að drekka það heldur að setja laufin eftir notkun á andlitið, það dregur víst úr hrukkumyndun. Sel það nú ekki dýrara en ég keypti það.
Grænt te getur verið skaðlegt í óhófi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2007 | 11:19
Mikið er ég fegin
að ég hef aldrei lært að drekka bjór. Hætti hins vegar að borða haframjöl í langan tíma eftir að einhver seinheppin húsmóðir fann kakkalakka í haframjölspakkanum sínum hérna í denn. Borða samt haframjöl í dag þó í litlum mæli sé.
Fann skordýr í jólabjórnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.7.2007 | 00:14