update #7

Helgin var frábær. Ég svaf úr mér alla þreytuna frá síðustu viku, en auk þess fórum ég og Ursula í Emirates Palace og sáum sýningu með verkum eftir Picasso. Það var alveg frábært. Ekki það að Emirates Palace er nú alveg ferðarinnar virði jafnvel þegar engin sýning er í gangi. Picasso_High_Resolution 442 x 590 Laugardeginum eyddi ég svo á kaffihúsi með bók í hönd, og gleymdi mér svo stórkostlega að ég fór allt of seint heim og er því hrikalega lúin í dag eftir of lítinn svefn þrátt fyrir góðu hvíldina á föstudaginn. Í dag var ég meira og minna með hroll, gæsahúð, flökureika og kaldan svita þar sem rætt var óþarflega mikið um ÆÐAR og við látin taka púlsinn á okkur sjálfum og svo á sessunautum okkar. Ég er alvarlega að velta því fyrir mér hvort til séu geðlyf handa mér við þessari fóbíu, því þessi vika var rétt að byrja og ég er nokkuð viss um að æðar muni koma oftar við sögu þar sem um skyndihjálparnámskeið er að ræða. Jæja, nú er ég búin að veita sjálfri mér alveg nóga klígju með þessari upprifjun á deginum svo ég verð að dreifa huganum með bók svo ég geti sofnað á eftir. Þar til næst...

update #6

Nú eru öll próf búin í þessu æfingaferli og er ég orðin flughæf á A330-200, A340-300,500&600, A320-200 og A319-100. Þetta var stíft prógram og það er ekki búið þótt SEP hlutanum sé loksins lokið. Í gær fengum við búningana okkar og í dag var allur dagurinn tileinkaður viðhaldi og reglum varðandi búningnn sem og almennt um útlitsreglur svosem förðun, skart, hár og annað. Einnig var enn og aftur meningarfræðsla, en mig er farið að gruna að þau hafi slæma reynslu af fyrri áhöfnum varðandi það að virða bæði menningu landsins sem við búum í, sem og menningu samstarfsfólksins, en það eru yfir 90 mismunandi þjóðerni innan áhafnarflotans.

Í tilefni af því að ljúka SEP hlutanum og því að fá loks fínu búningana okkar ákváðum nokkrar okkar að fara út að borða í gær. Við fórum á steikhús og ég fékk mér ægilega gott lambalæri. Það var náttúrulega ekkert í líkingu við það sem ég fæ hjá múttunni minni, en það var samt mjög gott.

Eftir tíma í dag gerði ég mér svo loks ferð í hinn enda bæjarins til að sækja um íbúðarhúsnæði. Ég var svo uppgefin að ég gleymdi alveg hvað það var sem ég ætlaði að taka fram í sérþörfunum. Ég vona bara að þetta fari allt saman á besta veg samt sem áður.

Jæja, fyrir þá sem það snertir þá ætla ég að setja inn nokkrar myndir snöggvst, ég sendi ykkur link á þær.

Kús og kossar :o*


update #5

Jæja, þá wr ég orðin flughæf á A330-200. Í næstu viku verð ég svo flughæf á A340-300, A340-500, A340-600 og eitthvað fleira sniðugt.
Prófin hafa gengið vel og einkunnir hafa verið háar, svo það er engin ástæða að óttast það að fljúga með mér, eins og staðan er í dag ;o)

Í dag fór ég í bólusetningar sem voru "útrunnar" og er því ákaflega þreytt núna, eins og hjúkkan varaði mig við að ég mundi verða. Þar af leiðandi ætla ég að hafa þetta stutt og fara að sofa. Langur dagur á morgun, eins og alla virka daga reyndar ;o/


fasteignir framtíðarinnar?

ég hefði ekket á móti svona íbúð.

 

http://www.gulfnews.com/business/Development/10222659.html 


update #4

Þá er komið að því - fyrsta prófið á sunnudaginn, en í beinu framhaldi verður æft ditching, eða nauðlending á vatni. Það verður hópæfing, okkar hópur, F&B hópurinn og flugmannahópurinn, þá ættum við að vera komin með ágætis fjölda til að æfa smá panic.

Af því tilefni ætla ég að fara í fót- og handsnyrtingu svo að allur kroppurinn sé aflappaður og einbeittur í lærdóminn, en ekki síður af því að í svona hrikalegum hita verður manni, eða allavega mér, ægilega illt í fótunum. í gær var 43 stiga hiti heyrði ég í útvarpinu. Ég vil ekki einu sinni vita hvað það er í dag, vonandi fer það ekki yfir 40.

Jæja, ekki miklar fréttir að segja núna, ég læt ykkur vita hvernig gekk í prófinu seinna í vikunni.


17di júní!

Hæ hó jibbí jei og allt það! Engar blöðrur eða candy floss fyrir mig, ég hélt upp á lýðveldisafmælið með því að taka skyndipróf um decompression og staðsetningar PO og MRT í Airbus 330-200. Þá lærði ég um eldvarnarbúnað í fyrrnefndri vél, aðferðir og skipulag.
Kvöldið fer svo í að læra meira um eld- og reykvarnir því á morgun byrjum við daginn á því að taka próf í því og förum svo að æfa allt heila klabbið í real-fire chamber sem er í raun klefi innréttaður eins og flugvél, en inni i honum verða kveiktir eldar svo við getum æft okkur að slökkva elda við sem raunverulegastar aðstæður. Í fyrtsa lagi verður kveiktur eldur út frá rafbúnaði í sætum, svo verður kveikt í sæti, þá verður kveikt í út frá eldunarbúnaði í eldhúsi, þá lítill eldur í t.d. rusli inni á WC, og að lokum stór eldur á WC. Það eina sem verður ekki svo mikið af er reykur, þar sem klefinn er útbúinn loftræstingu sem sæmir hlutverki hans. Sem betur fer!

Ég ætla svo að reyna að komast í hraðara net svo ég geti reddað mér firefox og þá get ég sett inn myndir fyrir ykkur að skoða. Það verður vonandi fljótlega.

hmmm látum okkur sjá, hvað meira vil ég segja ykkur núna. Það verður kannski ekki mikið meira í raun þar sem ég er að verða búin með nettímann minn.

Annars segi ég bara Masalama allir saman :o)


update #2

Ég skrifaði eftirfarandi færslu á föstudaginn, en átti ekki nettíma til að senda hana inn:

Þá er fyrsta vikan í þjálfun búin. Í raun var mest megnis verið að ganga frá formsatriðum varðandi skjöl, landvistarleyfi, atvinnuleyfi, samþykkt frá flugmálastofnun, kynna okkur fyrir menningunni, öryggistariði, neyðarnúmer hættur til að forðast o.s.frv.
Núna er hins vegar komin HELGI!! Vei vei vei! Já, mikið rétt hér er vinnu vikan sunöfim og helgin fös-lau. Reyndar þurfum við að fara snemma á laugardagsmorguninn að fá peningastyrk beint í hönd, svo ég fyrirgef að þessi fyrsta helgi sé aðeins einn dagur ;o)
Í dag var mjög svalt og þæglegt veður, ekki nema ca 35 stig og léttskýjað. Annars er búið að vera mikið sandfjúk síðustu daga sem lýsir sér þannig að það lítur út fyrir að vera hrikaleg mengun því maður sér hvorki himininn né sérlega langt út götuna (það er hins vegar alls ekki mikil loftmengun hér). Þá er ekki hægt að leggja nógu mikla áherslu á það að hafa alla glugga lokaða, bæði af því að annars endarðu með eyðimörkina inní í stofu hjá þér, heldur einnig vegna þess að úti er venjulega 40+ gráður og um 95% raki, en inni er loftkæling og þurrt, og það sem gerist er að það verður allt á floti – rafmagnstæki, húsgögn, föt og allt saman verður fyrir rakaskemmdum.
Þetta er allt svo ólíkt því sem maður á að venjast heima. En það er samt svo gaman að kynnast svona litlum hlutum sem eru svo mikill hluti af daglegu lífi fólks í öðrum heimshlutum.

Annars erum við farnar að leggja grunn að útskriftarskemmtiatriðinu okkar. Hvert batch þarf að gera frumsamið skemmtiatriði fyrir yfirmennina þegar þau fá vængina sína. Við erum með fullt af kjánalegum hugmyndum, en það er nú einmitt hugmyndin, bara að hafa þetta kjánalegt og skemmtilegt og njóta þess að vera ekki yfir það hafinn að skemmta sér eins og barn :o)
Í kvöld ætlum við allar í hópnum mínum að hittast og hafa ‘batch-274 social’ sem þýðir í raun það að við ætlum að hittast heima hjá mér, byrja að æfa atriðið okkar og fara svo allar saman á veitinga-/kaffihúsarölt í einu veitingahverfanna. Það er í raun mjög margt þannig upp sett í borginni, eins og litlar nútíma souq-ur, sem er mjög þægilegt. Ef maður ætlar að kaupa rafmagnstæki fer maður í rafmagnstækjahverfið, ef manni vantar farsíma fer maður í gemsahverfið o.s.frv. En svo eru auðvitað alltaf líka mollin, en eins og margir kannski vita eru þau engu lík hér í furstadæmunum.

Annars er ég að hugsa um að fara að huga að því að gera mig frambærilega í útliti svo ég geti látið sjá mig með öllum fögru dömunum ;o)


Stutt yfirgrip yfir síðustu daga...

Asalamu alaikum allir saman!
Fyrstu dagarnir hérna í Abu Dhabi hafa verið svolítið einkennilegir. Fyrstu dagarnir eru erfiðasti því maður þekkir engann og það er hrikalega einmanalegt að vera einn og hafa ekkert annað að hugsa um en fólkið sitt heima. Hins vegar komumst við að því á fyrsta skóladeginum (þegar við hittumst loksins) að við vorum allar, hver í sínu herbergi skælandi út allan laugardaginn tíhíhí.

Hins vegar hef ég ekki yfir neinu að kvarta utan þess. Stelpurnar sem eru með mér í hóp eru mjög yndælar og það er frábært hvað það eru mörg þjóðerni innan þessa litla hóps. Námskeiðin fara þægilega af stað, en við höfum verið varaðar við að verða ekki værukærar því álagið verður víst gríðarlegt strax í næstu viku.

Í dag var læknisskoðunarferli og búningamátun. Þetta var frekar langur dagur því við vorum sóttar um 7.30 og vorum búnar 15.30, en það var ekki ein pása svo garnirnar voru aldeilis farnar að gaula í lok dags.

Þá fórum ég, Kanika frá Indlandi, Jessica frá Frakklandi, Monika frá Ungverjalandi og Katrina frá Nýja Sjálandi saman í mollið áðan til að komast í súpermarkað að kaupa nauðsynjar. Auk matarbyrgða og hreinlætisvara teljast hárnet og hárkleinuhringir til nauðsynjavara þar sem að það er ‘grooming day’ á morgun og við viljum auðvitað fá toppeinkunn. His vegar týndum við Moniku, sem var mjög leiðinlegt, en hún er ótrúlega sjálfstæð svo við vorum ekki eins áhyggjufullar eins og ef einhver önnur af okkur hefði týnst.

Núna var ég að koma heim og er að gæða mér á pönnukökum og ávaxtasafa – fyrir þá sem ekki vita að þá hefur maður ekki smakkað ávaxtasafa fyrr en maður hefur bragðað ávaxtasafana hér! NAMMI NAMM!!!!!! Ekkert ferskara.

Annars fer ég nú að halda í bólið, pick up á morgun klukkan 6.30 og ég þarf að vera stífmáluð og með upptekið hár = þarf að vakna um 5.00 ;o)

Knús frá Abu Dhabi
xxxxxxxxxxxx


Stutt í brottför

Nú er rétt rúmur sólarhringur þar til ég yfirgef landið og ég veit í raun ekki alveg hvenær ég kem aftur. það er mjög einkennilega tilfinning.

Miðað við

hvað mér var brugðið hér heima í Reykjavík, þá get ég rétt ímyndað mér að margir muni þurfa á hjálp að halda sem voru nær upptökunum þegar skjálftinn varð. Ég er í það minnsta fegin að ég var ekki nær, ég er skelfilega hrædd við svona hamfarir. Það voru nokkrir hlutir sem mátti ekki miklu muna að hefðu fallið um koll hjá mér. Ég horfði á stóran fimm arma kertastjaka vagga á borðinu fyrir framan mig, líkt og hann væri að ganga í átt að brúninni, og rétt fyrir ofan hann sveiflaðist kristalsljóskrónan sem í trylltum dansi væri, í takt við göngulag stjakans. Gat ekki að því gert að ímynda mér eitt örskots augnablik að ég væri vitni að forboðinni ást sem loks hefði loks fengið útrás. En einmitt þá þurfti ég að grípa í húsgagn til að halda jafnvægi og rómantíkin hvarf um leið.

Annars eru kisurnar mínar tvær komnar undan rúminu. Það tók þær dágóða stund að þora því og sú eldri var kvekkt og eirðarlaus og óörugg það sem eftir lifði dags í gær. En við erum allar sprækar í dag. Maðurinn minn hlær bara að okkur.


mbl.is Sálrænt áfall getur komið í kjölfar skjálftans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband